Hæ elskurnar mínar!!
Langaði bara að skrifa ykkur pínupons svona í tilefni af því að það er bara ógóslega stutt í að ég kem heim!

ég er búin að sakna ykkar ekkert smá mikið! Ég sakna misheppnuðu og velheppnuðu djömmin okkar, misvelheppnuðu America's-Next-Topmodel hittingana okkar, rúntana sem alltaf einhverra hluta vegna enda á Aktu Taktu, mission imposible'in okkar að vekja Olgu, sumarbústaðarsukkin okkar og mest af öllu sakna frábæra húmorinn okkar!
Ég er hérna núna í 25 stiga hita í sundfötunum í sólbaði útí garði, yndislegt líf! Morguninn minn er búin að fara með því að fylgjast með maurum, sem ég er nokkuð viss um að séu í fjölskyldu með Olgu. Við erum nefnilega með maurabú í undir lista stofunni, við mamma erum búnar að reyna gjörsamlega allt til að drepa kvikindin, eitra, setja kanil, lokka þá til að drukkna í djúsi, ryksuga þá og nýjasta ráðið var að vera alltaf í skóm og stappa ofan á hvern einasta maur sem við sjáum.. það er sem sagt búið að vera læti í húsinu..
Nema hvað mamma skildi óvart eftir kókdós uppi á eldhúsborði í gærkvöldi og þegar við vöknum í morgun er kókdósin SVÖRT af maurum! í kringum dósina, utan um dósina, ofan á dósinni.. og best af öllu DRUKNAÐIR í kóki ofaní dósinni! Helvítin eru kókþyrstari en Olga nývöknuð, á heitum degi, eftir djamm og eftir kentucky! En allavega, við stilltum því kókglas fyrir framan búið þeirra í morgun og ég nýt þess að fylgjast með kvikindunum drekkja sér, bókstaflega, í kóki. Veit þó ekki hvort ég mun nokkrun tíman drekka kók aftur.. allavega ekki svona næsta hálftíman

Jæja, þetta var semsagt broti úr einmannasömu lífi mínu í Danmörkunni

Heheh
Love you mestast krúsurnar mínar! Knúsið hvort aðra frá mér!
Kveðja,
Hulda mauradrottning